Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1760, 151. löggjafarþing 663. mál: þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnaður (ferðakostnaður).
Lög nr. 94 25. júní 2021.
Réttur þingmanns skv. 1. og 2. mgr., sem sækist eftir endurkjöri, fellur niður þegar sex vikur eru til kjördags. Þó má ákveða í reglum forsætisnefndar að heimilt sé að endurgreiða alþingismanni ferðakostnað á þessu tímabili ef um er að ræða viðburði eða ferðir á vegum Alþingis eða þegar Alþingi er enn að störfum og þingmaður tekur þátt í störfum þess.
Þingskjal 1760, 151. löggjafarþing 663. mál: þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnaður (ferðakostnaður).
Lög nr. 94 25. júní 2021.
Lög um breytingu á lögum um þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnað, nr. 88/1995, með síðari breytingum (ferðakostnaður).
1. gr.
Við 7. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Réttur þingmanns skv. 1. og 2. mgr., sem sækist eftir endurkjöri, fellur niður þegar sex vikur eru til kjördags. Þó má ákveða í reglum forsætisnefndar að heimilt sé að endurgreiða alþingismanni ferðakostnað á þessu tímabili ef um er að ræða viðburði eða ferðir á vegum Alþingis eða þegar Alþingi er enn að störfum og þingmaður tekur þátt í störfum þess.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 12. júní 2021.